|
|
29.05.2006 09:26:03 / fry
Jám, það
er nú langt síðan ég skrifaði hérna, en það er búið að vera
mikið að gera seinustu 2 vikur, maður er búinn að vera vinna
frá 8 til 17 og síðan 18 til 24 þannig að maður hefur
eiginlega ekki fundið tíma.
En reyndar er ekki NEITT að gera í vinnunni frá 8 til 17 en ég hef
bara verið að horfa á sjónvarpið og hlusta á lög í tölvunni hérna,
get reyndar ekki verið á msn en ég er að reyna finna leið hehe
en það hefur verið smá að gera en það mun vera mikið að gera, bara
þetta er ekki byrjað.
Já ég er svona tæknilega að senda herinn heim, ég vinn uppá
hervelli og í Shipping deildinni, og er að koma vörum og búslóðum í
gám eða til skilar í flugvél. Yes, very nice og svo vinn ég líka
í dominos og í seinustu viku var megavika þannig að já, mikið að
gera 
En ég veit samt
ekki hvað skal segja, já ég á kærustu núna, svo allir vita það, við
erum búinn að vera saman í 9 vikur, og sú elska heitir Auður
Indíana 
Því ég veit
ekki hvað ég á að segja meira en ég mun alveg halda með þetta blogg
áfram þannig að hafið engar áhyggjur og þið fáið að heyra meira
af mér...
Until then, bye
bye
»
12.04.2006 19:03:30 / fry
Jám, ég er úti á einhverju Internet Chat eins og teir auglýsa
tad, og tad eru ekki íslenskir stafir eins og "þ"
"ð" og "ö" en ef tid erud ad velta tví hvernig ég gerdi
tessa stafi tá heitir tofraordin Copy Paste en ég nenni ekki ad
gera tad alltaf tegar mér vantar tá, en sem betur fer virkar komman
hérna og tá vitidi tad...
t = þ d =
ð o =
ö og
ae = "tid vitid tad alveg..."
Enn ég er búinn ad hafa tad fínt hérna lengst fyrir sunnan, tad er
fínn hiti hérna, ekki of mikill en tegar sólin er ekki og madur er
annahvort ber ad ofan eda í bol tá getur stundum verdid tannig kalt
ad madur faer gaesahúd.
Ég er med pabba mínum, konunni hans og
dóttir hennar sem er 12 ára, og vid erum búinn ad hafa tad fínt
hérna í hótel-íbúd sem er á 9 haed en er samt merkt 7 tví fyrsta
haedin er 0 og naesta er eitthvad setustofaog svonleidis svo byrjar
haedirnar á 1 og 2 .... frekar weird ad hafa tetta
svoleidis.
Enn tad er midvikudagur núna og ég kem
heim á mánudaginn naesta, vid vorum í svona jeppa
safarí eda sem er svona ferd sem vid erum í jeppa og erum ad keyra
út um allt og gedveikt útsýni og fórum ad einhverjum foss ad bada
okkur og eitthvad... skemmtileg ferd enn vid fórum í svaka
skemmtigard ekki í gaer heldur hinn, sem heitir Terra Matica eda
eitthvad tannig, sem var gedveikt skemmtilegur og ég segi meira frá
honum einhvertíman seinna, enn tad voru gedveik morg taeki og
rússíbanar og svoleidis, var skipt í 5 hluta eda tannig og var spes
theme fyrir hvert og allt gedveikt flott.
Enn vid vorum búinn ad ákveda tad ad vid mundum gera eitthvad svona
stórt eda svona mikid sem tekur allan daginn eda meiri hlutan af
deginum en seinustu dagana mundum vid liggja í sólbadi og slappa
af, tannig ad ég er ekki búinn ad gera mikid af tví enn maturinn er
tokkalega ódýr og gódur, tad er svaka strond... Hérna er mynd:

Benidorm er stundum kollud litla manhattan enn vid erum í íbúdar
húsi sem hóteldi Vina Del Marr á og tetta eru gedveik flot íbúd,
enn tetta hótel er eiginlega adeins fyrir aftan haesta húsid
sem er tarna en hótelid sést ekki á myndinni.
Ég aetla ad hafa tetta bara nóg í bili og tid getid séd fleirri
myndir hérna:
http://images.google.is/images?hl=is&q=benidorm&lr=&sa=N&tab=wi
kv. Siggi
»
24.03.2006 08:40:10 / fry
Ég var klukkaður af: Valla.
-Störf sem ég hef unnið um ævina: Ég hef unnið í
unglingavinnunni, IGS, Nesprýði og uppá hervelli.
-Bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Ég horfi
nú ekki oft á myndir aftur og aftur en geri það samt ef það er
langt síðan ég sá hana enn ég ætla að nefna nokkrar myndir sem ég
held uppá en samt er þetta bara brot:
BraveHeart ( 1995 ), The Negotiator ( 1998 ), The Matrix ( 1999 ),
Saving Private Ryan ( 1998 ), The Rock ( 1996 ) og Swordfish ( 2001
) til að enda þetta einhvertíman. Enn það eru miklu flerri myndir
sem ég held uppá.
-Staðir sem ég hef búið á: Þórustíg 30, Fífumói 5c og
Hjallavegur 1m þar sem ég bý núna, hef alltaf búið í
Njarðvík.
-Sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi: Futurama, Family Guy,
Lost, Little Britain plús fleirri sketch eða grín þætti. Ég
hef heyrt að Prison Brake sé spennandi og það koma örugglega
fleirri og fleirri þættir í sjónvarpinu sem maður á eftir að kíkja
á og fylgjast með.
-Staðir sem ég hef heimsótt í fríi: Þýskaland, fjórum
sinnum til Danmerkur, Svíþjóð og Englands en er að fara til Spánar
yfir páskana.
-Síður sem ég heimsæki daglega: Bloggsíður, hugi.is eve.is,
fss.is, imdb.com, bio.is en ég fer samt ekki daglega inná
þessar síður.
-Máltíðir sem ég held uppá: Ég get ligguð við borðað allt
og alls ekki matvandur og ég reyni að borða
fjölbreitt.
-Bækur sem ég les oft: Oft... ég les ekki oft bækur og hvað
þá mörgusinnum... en mér fannst bókin The Wave góð sem ég las í
ensku. Og LoveStar* fannst mér geðveik og á örugglega
eftir að lesa meira eftir Andra Snæ Magnason. Hehe ég fékk hann
meirisegja til að árita bókina 
Ég ætla að klukka Auði I. 
»
06.03.2006 23:48:12 / fry
Þá er mánudagurinn búinn og ég drullu þreittur, svaf 4 til 5
tíma laugadags nóttina og svo sunnudags nóttina eða seinustu nótt
svaf ég svipað lengi, var/er að leka niður í kvöld og ætla að reyna
fara fyrir miðnætti að sofa,,, allavegna svona 5 min í tólf eða
eitthvað hehe
Var að bæta inná síðunna og er alls ekki búinn ég á líka
alveg eftir að setja inná klukkið þegar Valli klukkaði mig.
Höfum þetta stutt núna en langt næst.....
»
05.03.2006 21:05:14 / fry
Úff! Já ég geri þetta ekki nógu reglulega, en ég nenni samt ekki
alltaf að vera segja að ég verð að standa mig og eitthvað svoleiðis
kjaftæði, ég segi bara að ég er ekkert að hætta að blogga og að ég
blogga þegar ég blogga púntur hehe og ég held svona loforðum
fyrir sjálfan mig.
En þessi helgi var að klárast og hún er búinn að vera fínt þrátt
fyrir að margt breittist sem ég ætlaði að gera, en í vikunni er ég
búinn að vera setja leiki inná þessa blogg síðu og þessir leikir
eru neðst og er undir flokknum 'Leikir' og ég á eftir að setja
fleirri leiki, það er svolítil vinna við að setja þetta inn fyrir
svona sérvitan mann eins og mig.
Láttum þetta nægja í bili, man ekki hvað ég ætlaði að segja meira
og ég þarf að fara..... c ya!
»
28.02.2006 08:18:17 / fry
Úff! vá hvað ég er þreittur, jám frekar langt síðan að ég
skrifaði ég verð að fara standa mig, það eru nú bara rólegir
dagar á næstunni þannig að ég á að geta eytt einhvern tíma í þetta.
Vá hvað ég hljóma leiðinlega samt!
Já Megavika búinn, þemadagar búnir, geðveikt stuð og skemmtilegt
á ballinu, það er mart sem hefur skeð og Valli víst „klukkaði“ mig
þannig að það kemur bráðum.
Og síðan ætla ég að setja fleirra á síðunna hérna, ég er með
nokkrar hugmyndir en ætla samt ekki að segja ykkur.
Ekkert fleirra eins og er...
C Ya Later
»
13.02.2006 12:56:32 / fry
Þetta var þokkalega skemmtilegt helgi, var reyndar að vinna á
föstudaginn alveg til 04:00 en þegar ég var búinn fór ég aðeins á
rúntinn með Sigga litla og Vigga, það voru ágætlega margir á
djamminu en svo sáum við helling af kennurum að skemmta sér á
hápúntinum, eða það voru allir að fara út af staðnum og svo tók ég
eftir honum Braga!! hann var svo á rassgatinu og hann er að kenna
mér og Sigga litla og það var svo findinn hvað hann var fullur!. It
was priceless!
En svo á laugadaginn fór ég í afmæli til frænda, hann er 4 ára,
það er fínt, helling af sykursprengjum sem er hættulegt fyrir að
aldraða, og það voru nokkrir í hættu.....
Svo um kvöldið fór ég í partyið til
Arons, það þar svaka stuð, fannst þetta rosagaman, fínt að hafa
svona chill/spjall/drikju(ekkimikla)/flipp party og þetta var
fínt.
Fór í RVK til að skutla Viktori A heim til sín, hitti á pabba
líka og var eitthvað á snattinu í borginni og fór síðan heim að
hanga, taka rólega eins og sunnudagarnir eru fyrir.
Svo núna næstu viku... það er nefnilega megavika hjá domino's og
fyrst ég vinn hjá domino's og eitt leiðir til að örðu þannig
að ég verð að vinna eins og mófó! Er að vinna alla daganna, minnst
2 eða 3 tíma á hvern dag. En ég ætla að láta þetta nægja í bili,
veit ekki hvort ég blogga eitthvað, gæti vel verið..... Er þetta
ekki týpískt, að segja þetta og svo gerist ekkert, en maður á bara
að var bjartsýnn so..... 
Until next! Buckle up and eat (not smartys)... oh fuck it!
»
10.02.2006 01:38:05 / fry
Já ég hef ekki aft/gefið mér tima í að bæta inná þessa
síðu, er með nokkra hluti/hugmyndir tilbúna en bara þarf að hafa
tíma. Ég var nefnilega að vinna í dag til 01:00 um nóttina og
var að koma heim núna, verð að vinna til 03:00 um nóttina á morgun
þannig að ég býst ekki við að ég muni setja eitthvað á síðuna á
morgun but I'll try the next day.
Frekar þreittur plús þreittur eftir að hafa unnið lengi þannig
að ég ætla að hafa þetta stutt, bara að tilkynna stöðuna... See you
soon I hope.
»
06.02.2006 19:34:22 / fry
»
02.02.2006 23:23:36 / fry
Já ég er búinn að bæta þarna inn svona dóti þarna vinstramegin á
síðunni, myndefni.
<--------
Já ég átti erfileikum að koma þessu þarna en ég náði því samt en
það er enþá eitthvað bögg en það verður bara að hafa það.
Já ballið var fínt, reyndar náði hljómsveitirnar ekki að koma öllu
fólkinu í nægilegt stuð þannig að það fyrst byrjuðu allir að
setjast niður og síðan bara byrjaði það að tínast út. En mér
finnst Jeff Who þokkaleg hlómsveit og var ánægður með þá.
Ég er núna bara búinn að vera heima og hanga í tölvunni og
eiginlega mest spilandi á gítar, var að læra flott lag sem er
flókið og hratt þannig að ég var bara á fullu að læra það.....
Ég held að ég læt þetta gott heita í bili,
»
01.02.2006 12:28:12 / fry
Vá ég svaf yfir mig í dag! ég var ekki sáttur með sjálfan mig
well, shit heppens, maður ætti kanski að fara aðeins fyrr að
sofa..... neee sleppum því bara.
Ég er í skólanum núna, ég er ágætlega ánægður með skólanemdina
núna, þokkalega virk og er með svona sniðugt atriði, yfirlýsingar
eða tónlist, það var verið að auglýsa ball sem er í kvöld og
ég er að pæla í að fara, þótt að það sé á Traffic þá ætla ég að
fara því hljómsveitin Jeff who spilar og svo líka að ég held að það
fara helling þannig að það eru góðar líkur að það verðu stuð.
Núna ætla ég að fara gera þetta tímaverkefni sem ég á að gera í
tímanum.
P.S. Ég keypti bara nýjan harðadisk, búinn að
setja upp windowsið þannig að á bara eftir að setja upp helling
annað og update-a windowsið.
»
31.01.2006 15:37:51 / fry
Well, vá langt síðan að ég bloggaði seinast, en svona er þetta.
Það hefur gerst mart en ég mun ekki þræða dagana hvern fyrir sig í
þetta skipti.
Enn í gær þá fórum við í bíó, þetta var mjög skemmtilegt og góð
mynd, Fun with Dick and Jane, mæli með henni.
Ég er í skólanum að skrifa þetta núna, ég er í svo mörgum tímum
sem eru við tölvu en samt hef ég ekki tíma til að blogga því maður
verður víst að fylgjast með og einbeita sér við námið well,
allavegna ég ætla ekki byrja að tala um það. En ákvað að segja
eitthvað eftir allan þennan tíma til að sýna að ég er ekki dauður
hehe
EN bless í bili!
»
16.01.2006 18:55:33 / fry
Vá, langt síðan að ég skrifaði seinast, það gerðist þó ekkert
það séstakt í seinustu viku, en fyrsta vikan í skólanum var fín,
núna er að byrja önnur vika og svaka stuð í skólanum.
Á föstudaginn var ég að vinna til eitthvað kl 22:00 eða eitthvað
álíka en eftir það þá fórum við vinirnir að leika okkur aðeins í
snónum, vorum alveg framm á nótt að leika okkur... ég segi ekki
meir um það 
Síðan á laugadaginn vaknaði ég og fór að vinna kl 17:00 og var að
vinna til 4 um nóttina þannig að það var það eina sem ég gerði á
laugadaginn 
Á sunnudaginn gerði ég heldur ekki neitt,... eða jú ég gerði alveg
helling, en var bara heima, fór ekkert út allan dagin, hafði það
bara mjög notalegt heima horfa á myndir, hlusta á tónlist, í
tölvunni, á msn, spilandi á gítar og helling 
Ég fór bara í skólan, hafði það fínt og er núna heima hlustandi á
tónlist og á msn, ( og náttúrulega skrifa þetta dót )
Þannig að þetta hefur skeð svona gróflega
sagt, en það er aldrei að vita hvað verður gert í kvöld og
svoleiðis Until next time, bye!
»
12.01.2006 00:00:17 / fry
Mér líður betur núna, ekki eins og ég var að lýsa fyrr í dag...
Ég og Valli skelltum okkur í bíó á Hostel í Smáranum. Mér fannst
þetta cool mynd og skemmtileg, ógeðsleg og snild að vissu leiti,
eða í stuttu máli, Geðveik Og ég mæli með að fara á
hana, hún látur mann líða svolítið vel í endanum og kanski smá
óglatt eða samt ekki. Well þið túlkið þetta bara eins og
ykkur sýnist.
Fjandin bóksalan, sálfræðibókin var uppseld eða eitthvað þannig,
það var sagt að bókin kemur á morgun þannig að ég þarf að fara
aftur þangað, en ég keypti samt restina. Ég held að þetta á eftir
að vera fín önn, ég er ánægður með töfluna þó að ég vildi frekar
vera hjá Einari Arason heldur en Ægi Karl en ég held samt að hann
sé fínn, ef maður nær að halda að fylgjast með frekar en að sofna
(hann talar nefnilega frekar mikið) en ég ætla að láta þetta nægja
í bili, Bye Bye
»
11.01.2006 17:10:00 / fry
Daginn, vá hvað mér líður skringilega! Ég þarf að
skutlast útí bókabúð til að kaupa helling af stílabókum og síðan
Sálfræði bókina. Ég er bara vona pokerskapi, ég er ekki
að meina að ég sé í stuði til að spila Poker heldur alveg eins og
Pokerface,, þá er ekkert bros eða enginn tilfinning í andlitinu,
enginn svipur eða neitt, Pokerface. ég er í svoleiðis í skapinu,
hvorki ánægður né leiður, veit ekki afhverju en ég er bara hlusta á
góða tónlist hérna en samt.......
Well, ég vona að það breitist fljótt, oftast er ég á ágættu stuði
eða svona jolly, well, that's life!.... Hérna er texti úr einu
lagi, ég ætla ekki að segja hvaða lag það er en þetta er gott lag
og það er cool ef þið getið giskað á það án þess að svindla
eitthvað 
You could have been number one
If you only had the chance
And you could have ruled the whole world
If you had the time
Ef þið viljið fá allan textan fyrir meira hint þá skal ég gera
það ef þið viljið.
P.S. Ég er að redda svolitlu svo ég get sett
kanski einhverjar myndir og fleirra inná síðunna. (afsakið
stafsetningarvillur, ég er lesblindur so it's not 100% my
fault)
»
Síður: 1 2
|
|